Skip to Content

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Dagur Íslenskrar náttúru

16.09.2015 @ 20:00 - 22:00

Free

Í tilefni dags íslenskrar náttúru hafa Náttúrustofa Suðausturlands og Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs í Gömlubúð á Höfn ákveðið að standa fyrir viðburði á Höfn í Hornafirði.
Miðvikudaginn 16. september kl. 20 verða flutt tvö fræðsluerindi í Gömlubúð. Erindin tengjast bæði Holuhrauni, en rúmt ár er síðan þar hófst eldgos.
Fyrst flytur Guðrún Nína Petersen veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands erindi sem kallast: Áhrif landslags og veðurs á gasútbreiðslu úr Holuhrauni.
Strax á eftir flytur Helga Árnadóttir sérfræðingur hjá Vatnajökulsþjóðgarði erindi sem kallast: Eldgos í þjóðgarði –landvarsla á umbrotatímum og í nýju landi
Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Þennan sama dag ætlar Fuglaathugunarstöð Suðausturlands að vera með opið í Einarslundi. Þar verður hægt að fylgjast með merkingum á fuglum frá kl. 06 til kl. 12 þann 16. September.
Allir velkomnir.

Details

Date:
16.09.2015
Time:
20:00 - 22:00
Cost:
Free

Venue

Gamlabúð
Höfn, United States

Organizer

Náttúrustofa Suðausturlands
Phone
4708060
Email
kristin@nattsa.is
View Organizer Website

 

Viðburður birtirst á síðunni þegar skráning hefur verið samþykkt af umsjónarmanni heimasíðunnar.