Skip to Content

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Flugeldasýning Jökulsárlóni

15.08.2015 @ 23:00 - 23:30

Kr1000

Flugeldasýningin á Jökulsárlóni verður laugardagskvöldið 15. ágúst klukkan 23:00. Flugeldasýningin er árlegur viðburður og er þetta í sexstánda sinn sem sýningin er haldin. Fjöldi áhorfenda hefur farið stigvaxandi með ári hverju og undanfarin ár hafa á annað þúsund manns komið ár hvert til að njóta sýningarinnar.
Uppruna flugeldasýningarinnar má rekja til uppskeruhátíðar starfsfólks við Jökulsárlón, og smám saman vatt hún upp á sig. Undirbúningur fyrir sýninguna hefst fyrr um daginn þegar menn á gúmmíbáti fara um lónið og raða 150 friðarkertum á ísjaka. Um kvöldið er kveikt á kertunum og síðan skotið upp flugeldum á nokkrum stöðum á lóninu. Sýningin varir í u.þ.b. 40 mínútur. Upplýstir ísjakarnir eru baðaðir í litum og birtu frá stórkostlegri flugeldasýningu í magnaðri umgjörð náttúrunnar sem skapar einstaka upplifun fyrir áhorfendur.

Ferðaþjónustan Jökulsárlóni og Björgunarfélag Hornafjarðar standa að sýningunni í samstarfi við Ríki Vatnajökuls. Aðgangseyrir er 1000 krónur og frítt inn fyrir 12 ára og yngri. Allur ágóði rennur til Björgunarfélags Hornafjarðar.

Details

Date:
15.08.2015
Time:
23:00 - 23:30
Cost:
Kr1000

Venue

Jökulsárlón

Organizer

Ferðaþjónustan Jökulsárlóni og Björgunarfélag Hornafjarðar

 

Viðburður birtirst á síðunni þegar skráning hefur verið samþykkt af umsjónarmanni heimasíðunnar.