Hin árlega groddaveisla Óss verður í Nýheimum 14. mars. Húsið opnar kl 19.00. Málverkauppboð til góðgerðarmála, blúsmúsik, vinningar dregnir út úr númeruðum miðum. Gamanmál og gaman saman. Boðið verður upp á hlaðborð með söltuðu spikfeitu hrossa- og sauðakjöti og grillaðu hvalkjöti. Þetta verður borið fram með Seljavallakartöflum, rófum, uppstúf og öðru meðlæti. Styrkið styrktarsjóð Óss. Verð aðeins kr 4.000. Miðapantanir í síma 4781300 eða [email protected]
Viðburður birtirst á síðunni þegar skráning hefur verið samþykkt af umsjónarmanni heimasíðunnar.